Hvernig er það með svona deli mat? Eins og roastbeef td. Má borða það á meðgöngu?
Deli matur getur verið áhættusamur þegar kjöt hefur verið lítið eldað. Hrátt og lítið eldað kjöt er ekki ráðlagt að neyta á meðgöngu vegna mögulegrar hættu á Listeriu smiti.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.
Hæhæ, ég er ný búin að fá jákvætt próf og út frá reikningum ætti ég að vera komin 6 vikur - en er auðvitað ekki viss.
Hvað byrja ég á að gera þetta er mitt fyrsta jákvæða próf - við erum rosa til í að fara í snemmsónar, hvar er best að fara í það?Góðan dag og til hamingju með þungunina,
Snemmsónar er framkvæmdur á ýmsum stöðum hérlendis. Tilgangur þeirra er að staðfesta þungun í legi og meta meðgöngulengd. Kvensjúkdómalæknar og ljósmæður sem hafa lært sónarskoðanir taka að sér að framkvæma þessar skoðanir. Hvet þig til að kynna þér hvað er í boði.
Gangi þér vel.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.
Má nota tannhvíttunarefni (Crest 3D whitestrips) á meðgöngu?
Góðan dag og takk fyrir fyrirspurnina,
Því miður eru ekki nægar rannsóknir til varðandi þetta og önnur tannhvítunarefni. Því er ekki ráðlagt að nota þessar vörur á meðgöngu.
Bestu kveðjur, Ilmur Björg Einarsdóttir, ljósmóðir.

Alþjóðasiðareglur ljósmæðra
Siðareglur ljósmæðra byggja á gagnkvæmu trausti og virðingu og á þeirri meginhugsun að sérhvern einstakling beri að virða sem manneskju.
Fæðingartölur á Íslandi
- 0
Að meðaltali fæðir kona/leghafi 1,6 barn á ævi sinni. Sú tíðni hefur jafnt og þétt farið lækkandi síðastliðna áratugi.
- 0
Árið 2023 fæddust samtals 2257 drengir, sem var tæplega helmingur allra fæddra barna.
- 0
Á sama tíma fæddust 2058 stúlkur, sem gerði heildarfjölda nýfæddra barna að 4315.
