Spurt og svarað

03. júní 2014

Erlend, fæðir á Íslandi

Góðann dag.
Er hægt að tryggja sig fyrir ófyrirséðum lækniskostnaði vegna óléttu hérlendis eða erlendis? Kærastan er kanadískur ríkisborgari, er ólétt og er ekki búin að vera á vinnumarkaði í 6 mánuði og lendir því kostnaður væntanlega allur á okkur? Er einhverstaðar hægt að sjá verðskrá á netinu eða annarstaðar?



Sæll vertu!
Upplýsingar um sjúkratryggingar er hægt að skoða á www.sjukra.is og á heimasíðu fjölmenningarseturs, þar kemur meðal annars fram að þeir sem hafa átt lögheimili á Íslandi sl. 6 mánuði eru sjúkratryggðir, sjá nánar hér. Það sem þú ert að vísa í með að vera á vinnumarkaði í 6 mánuði er væntanlega réttur til fæðingarorlofs, en réttur til fæðingarorlofs er einmitt bundinn við að hafa verið á vinnumarkaði á Íslandi í 6 mánuði áður en taka fæðingarorlofs hefst. Á heimasíðu fjölmenningarseturs eru einnig upplýsingar um skammtíma sjúkratryggingar, þeir sem ekki eru sjúkratryggðir þurfa að greiða hærra gjald. Á heimasíðu Landspítala er hægt að skoða gjaldskrá fyrir þjónustu, einnig fyrir þá sem eru ekki sjúkratryggðir, sjá hér.
Gangi ykkur vel.


Með bestu kveðju,
Signý Dóra Harðardóttir,
ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur,
2. júní 2014




Senda fyrirspurn
Allir reitir verða að vera fylltir útSenda
Fyrirspurnin þín hefur verið send.
Fannstu ekki svar?

Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.

Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.

Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.