Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
20. janúar 2015
Sælar og takk fyrir frábæran vef! Ég hætti með strákinn minn á brjósti um 1 árs. Á einum og hálfum mánuði hef ég nú farið á miklar blæðingar fjórum sinnum, fyrst mánuði eftir að brjóstagjöf var hætt. Er þetta eðlilegt?
Komdu sæl, það verður að segjast að þetta eru meiri blæðingar en vanalegt er. Það er mjög eðlilegt að byrja fljótlega eftir að brjóstagjöf sleppir en oftast fara blæðingar sjálfkrafa í sinn fyrri farveg eins og áður en þú varðst ófrísk. Þetta er líkast til tímabundin óregla á hormónum. Ef þetta fer ekki að lagast ættir þú að ráðfæra þig við lækni.
Bestu kveðjurÁslaug Valsdóttirljósmóðir og hjúkrunarfræðingur20. jan. 2015
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.