Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
15. mars 2015
Ég vildi bara forvitnast hjá ykkur, ég eignaðist mitt fyrsta barn í nóvember og var með hann mjög stutt á brjósti, byrjaði svo á blæðingum í janúar og aftur í febrúar en svo núna er ekkert að gerast og ég hefði alveg átt að byrja fyrir rúmri viku síðan. Er alveg eðlilegt að þær séu óreglulegar eftir fæðingu? Ég og maðurinn minn höfum bara stundað kynlíf með verjum svo ég ætti nú ekki að vera ólétt aftur.
Komdu sæl, jú það er ekki óalgengt að einhver blæðingaóregla sé fyrst á eftir. Ef blæðingar eru ekki nú þegar byrjaðar ráðlegg ég þér að gera þungunarpróf til útilokunar. Ef það er neikvætt bíddu þá bara róleg og sjáðu hvort regla kemst ekki fljótlega á blæðingarnar að nýju.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.