Ljósmóðir.is notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun og stuðla að frekari þróun heimasíðunnar.
Upplýsingar um vafrakökur
20. apríl 2015
Komið þið sælar. Mig langar að spyrja ykkur út í eitt, Mér er búið að vera flökurt seinustu 2 daga og með sting við lífbein í dag. Ég var að spá í hvort þetta sé óléttu einkenni. Ég byrjaði seinast á blæðingum 28. mars og svo sváfum við kærasti minn saman um 11. apríl svo að ég er að velta fyrir mér hvort það sé fræðilegur möguleiki að fá einkenni svona snemma ef ske kynni að ég sé ófrísk. Með fyrir fram þökk.
Heil og sæl, nei ef þú hefur orðið ófrísk 11. apríl þá er ekki möguleiki á því að þú sért komin með þungunareinkenni. Þungunareinkenni koma ekki fram alveg strax.
Einnig viljum við benda á bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands og greinarnar "Ljósmóðirin skrifar um", þar er að finna svör við mörgum af algengustu fyrirspurnunum.
Ljósmóðir mun leitast við að svara fyrirspurnum sem fyrst en athugið að það geta liðið allt að tvær vikur frá því að fyrirspurn er send inn og þar til svar er birt hér á vefnum. Svör við fyrirspurnum eru aðeins ætluð til fræðslu og upplýsingar en eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar ljósmæðra, lækna eða annars fagfólks.
Því miður getum við ekki svarað öllum fyrirspurnum sem berast en leitumst fyrst og fremst við að svara fyrirspurnum um efni sem ekki hefur verið spurt um áður. Svör við fyrirspurnum birtast hér á síðunni ásamt fyrirspurninni sjálfri.