Fréttir

 
2 bæklingar í viðbót...25.8.2010 18:18:32

Nú eru komnir inn 2 nýir bæklingar í bæklingaröð Ljósmæðrafélagsins:
Vatnsböð í fæðingum og vatnsfæðingar
Verkjameðferð með lyfjum

Áður voru komnir inn bæklingarnir:
• K-vítamín fyrir nýbura. Hvers vegna?
• Þriðja stig fæðinga. Hvað er það og hvaða val hef ég um meðferð?
• Val á fæðingarstað. Hvar á ég að fæða barnið mitt?
• Lengd meðganga. Áhætta eða óþarfa áhyggjur?
• Verkjameðferð án lyfja í fæðingu

Á næstunni munu svo koma bæklingarnir:
• Fæðingarþunglyndi
• Hlustun fósturhjartsláttar í fæðingu
• Stuðningur og yfirseta í fæðingu



Foreldrafræðslunámskeið í vetur10.8.2010 16:48:13

Vegna frábærra undirtekta foreldrafræðslunámskeiða hjá 9 mánuðum í sumar er ákveðið að halda áfram með þau í vetur, a.m.k. fram að jólum.  Fyrir foreldra sem eiga von á sínu fyrsta barni verða námskeiðin með sama sniði og áður.  Námskeiðin verða haldin á miðvikudagskvöldum frá 18-21. Einungis sjö pör komast á hvert námskeið. Sjá nánar á heimasíðu 9 mánaða www.9manudir.is námskeið – foreldrafræðsla.

Einnig verður boðið upp á fæðingafræðslunámskeið fyrir foreldra sem hafa áður fætt barn og hafa jafnvel farið á námskeið á fyrri meðgöngu.  Á því námskeiði verður upprifjun á fæðingarferlinu og fyrstu dögunum í lífi barnsins.  Einnig verður farið í hvernig best sé að undirbúa eldri systkini undir komu nýja barnsins. Einungis sjö pör komast á hvert námskeið. Sjá nánar á heimasíðu 9 mánaða www.9manudir.is  námskeið – fæðingarfræðsla.



Fæðingarfræðsla - foreldrafræðsla hjá 9 mánuðum.5.7.2010 20:04:27

Nú er boðið upp á foreldrafræðslunámskeið með fæðingarfræðslu hjá 9 mánuðum. Námskeiðin eru í höndum ljósmæðra og fara þau fram í húsnæði 9 mánaða að Hlíðarsmára 2 Kópavogi.

Á námskeiðunum er lögð áhersla á:

  • Fæðinguna t.d. mismunandi fæðingarstellingar, öndunartækni, nudd, slökun sem og aðrar verkjameðferðir
  • Að efla sjálfsöryggi og sjálfshjálp verðandi foreldra
  • Umönnun nýfædda barnsins og fyrstu dagana í lífi þess

Markmið með námskeiðinu er:

  • Að verðandi foreldrar öðlist hagnýta þekkingu á fæðingunni og getið valið á milli ýmissa valkosta sem upp koma í fæðingu, t.d. mismunandi fæðingastellinga, verkjameðferða o.fl.
  • Að efla sjálfsöryggi og sjálfshjálp verðandi foreldra
  • Að fræða foreldra um nýfædda barnið og fyrstu dagana í lífi þess

Hvert námskeið í sumar er ein kvöldstund, frá kl. 18 – 21. Að auki er boðið upp á heimsókn á fæðingardeild Landspítala og í Hreiðrið. Hámarksfjöldi á námskeiði eru 10 pör.

Eftirfarandi námskeið verða í sumar (með fyrirvara um næga þátttöku):

  • 7. júlí (fullbókað)
  • 13. júlí
  • 29. júlí 
  • 5. ágúst
  • 19. ágúst
  • 2. september

Mikilvægt er að verðandi móðir og faðir/fæðingarfélagi mæti saman á námskeiðið.

Verð kr. 5000 fyrir parið. Innifalin eru námskeiðsgögn og léttar veitingar.

Gott að mæta í þægilegum klæðnaði. Hægt er að skrá sig á námskeið í gengum heimasíðu 9 mánaða og fá nánari upplýsingar með því að senda póst á gualjosa@9manudir.is eða elinarna@9manudir.is  



Fleiri bæklingar komnir inn!25.6.2010 11:07:32

Nú eru komnir inn 3 nýir bæklingar í bæklingaröð Ljósmæðrafélagsins:
• Val á fæðingarstað. Hvar á ég að fæða barnið mitt?
• Lengd meðganga. Áhætta eða óþarfa áhyggjur?
• Verkjameðferð án lyfja í fæðingu

Áður voru komnir inn bæklingarnir:
• K-vítamín fyrir nýbura. Hvers vegna?
• 
Þriðja stig fæðinga. Hvað er það og hvaða val hef ég um meðferð?

Á næstunni munu svo koma fleiri bæklingar. Eftirfarandi bæklingar eru enn í vinnslu en verða komnir á vefinn fyrir 1.nóvember:
• 
Fæðingarþunglyndi
• 
Hlustun fósturhjartsláttar í fæðingu
• 
Stuðningur og yfirseta í fæðingu
• 
Vatnsböð í fæðingum og vatnsfæðingar
• 
Verkjameðferð með lyfjum



Stofnfundur heimafæðingafélagsins10.5.2010 12:00:38

Stofnfundur heimafæðingafélagsins verður haldinn þriðjudaginn 11. maí kl. 20.30 í Lótusjógasetrinu, Borgartúni 20.  ALLIR VELKOMNIR!

Dagskrá

  • Markmið félagsins
  • Kosning í stjórn
  • Ritstjórn heimasíðu
  • Nafn á félagið


Bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands – NÝJUNG Á VEFNUM5.5.2010 11:23:59

Ljósmæðrafélag Íslands er að hefja útgáfu á nýjum rafrænum bæklingum sem verða birtir hér á vefnum. Við köllum þetta Bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands því meiningin er að gefa út röð bæklinga um ýmis málefni í barneignarferlinu. Bæklingarnir eru til fróðleiks og til að auðvelda foreldrum og verðandi foreldrum að taka upplýstar ákvarðanir. Bæklingarnir eru skrifaðir af ljósmæðrum og eru byggðir á gagnreyndri þekkingu.

Fyrstu 2 bæklingarnir, K-vítamín og Þriðja stig fæðingar eru nú tilbúnir en fleiri verða aðgengilegir á vefnum um leið og þeir eru tilbúnir. Bæklingarnir eru settir fram á pdf formi og þannig er hægt að skoða þá á skjánum eða prenta út. Í fyrsta áfanga verkefnisins eru 10 bæklingar sem verða tilbúnir fyrir 1. nóvember 2010.

Það er von okkar að þessir bæklingar séu fróðlegir og verði hvatning til verðandi foreldra til þess að taka upplýstar ákvarðanir og auðveldi þeim ákvarðanatöku í barneignarferlinu. Við vonum einnig að bæklingarnir gagnist ljósmæðrum, læknum og öðru fagfólki við að veita þá fræðslu og ráðgjöf sem nauðsynleg er til að fólk geti tekið upplýsta ákvörðun eins og gert er ráð fyrir í lögum um réttindi sjúklinga.

Fyrsti áfangi – 10 bæklingar
• Fæðingarþunglyndi
• Hlustun fósturhjartsláttar í fæðingu
 K-vítamín fyrir nýbura
• Lengd meðganga
• Stuðningur og yfirseta í fæðingu
• Val á fæðingarstað
• Vatnsfæðingar
• Verkjameðferð án lyfja
• Verkjameðferð með lyfjum
 Þriðja stig fæðingar



Alþjóðadagur ljósmæðra - 5. maí5.5.2010 11:19:20

Yfirskrift dagsins nú í ár og fram til ársins 2015 er „Heimurinn þarfnast ljósmæðra, nú sem aldrei fyrr“.  Í tilefni dagsins halda íslenskar ljósmæður ráðstefnu í sal BHM í Borgartúni 6 kl. 13-16.30 þar sem þemað verður samskipti. Ráðstefnan er haldin á vegum Fagráðs ljósmæðra á Landspítala, Námsbrautar í ljósmóðurfræði Háskóla Íslands og Ljósmæðrafélags Íslands 

Dagskrá ráðstefnunnar

  • 13.00 -13.10 Setning, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, ljósmóðir 
  • 13.10 -13.30 Viðhorf og reynsla erlendra kvenna af barneignarþjónustu á Íslandi: Snertifletir samskiptaBirna Gerður Jónsdóttir, ljósmóðir 
  • 13.30 – 13.50 Samskipti - túlkun upplýsinga til fæðandi kvennaAnna Sigríður Vernharðsdóttir, ljósmóðir
  • 13.50 – 14.20 Samskipti – upplýsingar til barnshafnadi kvenna og fjölskyldna þeirra, Valgerður Lísa Sigurðardóttir, ljósmóðir og Anna Sigríður Vernharðsdóttir, ljósmóðir
  • 14.20- 14.50 Samskipti milli stofnana – breytingar á þjónustustigi, Sigrún Kristjánsdóttir, yfirljósmóðir Selfossi,  Guðrún Guðjartsdóttir og Anna Rut Sverrisdóttir, yfirljósmæður Keflavík 
  • 14.50 -15.30 Röð málþinga um ljósmóðurfræði veturinn 2009-2010 – Samantekt: Umræður um stefnur og strauma,          Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands og
    Ólöf Ásta Ólafsdóttir, formaður námsbrautar í ljósmóðurfræði H.Í.
  • 15.30- 16.30 Samskipti – léttar veitingar 


Nýr bæklingur um heilsutjón vegna gosösku26.4.2010 10:18:46

Út er kominn rafrænn bæklingur þar sem farið er í varúðarráðstafanir vegna gosösku og áhrif hennar á mannslíkamann. Þar er sérstakur kafli um börn sem vert er fyrir foreldra að skoða.  Hægt er að lesa bæklinginn á vef Almannavarna 

Þeir sem standa að útgáfu bæklingsins eru Almannavarnir, Ríkislögreglustjóri, Rauði krossinn, Landspítali háskólasjúkrahús og Landlæknisembættið.



Húfuverkefni Kvenfélagasambands Íslands16.4.2010 04:54:21

Kvenfélagasamband Íslands í samvinnu við Ljósmæðrafélag Íslands og kvenfélögin í landinu standa að skemmtilegu verkefni á þessu ári. Verkefnið snýst um að prjóna húfur og afhenda þær öllum börnum sem fæðast á Íslandi árið 2010. Áætlað er að um 5000 húfur þurfi í verkefnið en gert er ráð fyrir að um 5000 börn fæðist á landinu afmælisárið. Ljósmæður afhenda foreldrum nýburanna húfurnar við útskrift af fæðingardeildum og í heimahúsum þar sem fæðingar verða.

Konum utan kvenfélaganna er velkomið að leggja verkefninu lið og má hvort sem er merkja þær húfur Kvenfélagasambandi Íslands, héraðssambandi eða kvenfélagi á viðkomandi svæði, sem og prjónakonunni.

Sjá nánar á vef Kvenfélagasambands Íslands



Opinn hópur fyrir ungar og verðandi mæður í Molanum9.4.2010 12:21:57

Ungmennahúsið Molinn í Kópavogi hóf starfsemi sína í maí 2008 en það er staðsett á menningarholtinu svokallaða, en þar eru menningarstofnanir bæjarins staðsettar. Molinn er fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára.

Í Molanum er starfandi opinn hópur fyrir ungar og verðandi mæður. Fræðsla - Stuðningur - Félagsskapur. Hist er í Molanum á mánudögum frá kl. 16.00-17.00. Verið velkomnar!

Starfsemi Molans má skipta í þrennt:

Í fyrsta lagi má nefna menningarlega viðburði. Molinn býður upp á aðstöðu fyrir alls konar listir til að blómstra, má þar nefna tónlist, myndlist, leiklist og ritlist. Hugmyndin er að þar geti ungt fólk bæði stundað sínar listir og nýtt sér aðstöðuna til að flytja afrakstur sinn og koma sér á framfæri. Í húsinu er myndlistargallerí þar sem ungir listamenn geta sýnt verk sín en einnig er aðstaða í húsinu til ýmis konar útgáfu, svo sem umbrotsforrit og myndvinnsluforrit sem nýta má í hvers kyns útgáfu á stuttmyndum, bæklingum, blöðum, tónlist og fleiru.

Í öðru lagi er ungmennahúsið félagslegur staður. Um er að ræða kaffihús þar sem hægt er að kaupa veitingar á vægu verði, hitta vini og lesa bækur og blöð. Í húsinu er þráðlaus aðgangur að netinu og gestir geta fengið afnot af tölvum sem til eru í húsinu. Íþróttaviðburðir og annað sem áhugi er á eru sýndir á breiðtjaldi en auk þess er aðstaða fyrir margs konar menningarviðburði eins og uppistand, ljóðalestur, tónlistarflutning, gjörninga, leiksýningar og annað sem fólki dettur í hug.

Í síðasta lagi er veitt ýmis þjónusta fyrir ungt fólk. Boðið er upp á ýmis námskeið í takt við áhuga þeirra sem sækja Molann hverju sinni. Segja má að frovarnastarf sé í rauði þráðurinn í starfseminni. Unnið er að fjölbreyttu fræðslu og forvarnarstarfi auk þess sem atvinnumál ungs fólks eru í brennidepli.

Sjá nánar á www.molinn.is



Þögul þjáning - ráðstefna um kynbundið ofbeldi á Akureyri31.3.2010 09:54:54

Háskólinn á Akureyri og Jafnréttisstofa standa fyrir ráðstefnu um kynbundið ofbeldi sem nefnist Þögul þjáning. Ráðstefnan verður haldinn föstudaginn 16. apríl 2010 í Háskólanum á Akureyri, stofu L201á Sólborg, kl. 9.00-16.10.

Skráning: Á slóðinni http://www.unak.is/radstefnur

Þátttökugjald 10.000 kr.

Sjá dagskrá ráðstefnunar.



Styrktarfélagið Líf4.1.2010 09:57:10

Styrktarfélagið Líf var stofnað 7. desember 2009. Að félaginu standa núverandi og fyrrverandi starfsmenn kvennadeildar ásamt breiðum hópi fólks víðsvegar úr þjóðfélaginu. Félagið er fyrir karla og konur enda njóta karlar einnig þjónustu kvennadeildar þar sem börn þeirra fæðast og margir dvelja einnig á kvennadeildinni á meðan fæðingu/sængurlegu stendur.

Styrktarfélagið Líf hefur þann tilgang að styrkja Kvennadeild Landspítalans, bæta aðbúnað og þjónustu við  konur og fjölskyldur þeirra á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu sem og kvenna sem þurfa umönnun vegna kvensjúkdóma. Félagið vinnur að líknar- og mannúðarmálum í þágu fjölskyldna.

Styrktarfélagið Líf er stofnað með langtímaverkefni í huga og það mun afla fjár með félagsgjöldum sem greidd verða ár hvert og einnig standa að margvíslegum fjáröflunum.
 
Að félaginu standa núverandi og fyrrverandi starfsmenn kvennadeildar ásamt breiðum hópi fólks víðsvegar úr þjóðfélaginu.
 
Þó skírskotun sé augljós til kvenna vegna kvennadeildar leggjum við áherslu á að félagið er fyrir karla og konur enda njóta karlar einnig þjónustu kvennadeildar þar sem börn þeirra fæðast og margir dvelja einnig hjá okkur á meðan fæðingu/sængurlegu stendur.

Nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins www.styrktarfelagidlif.is



Bráðum koma blessuð jólin...4.12.2009 17:45:06

Þegar líður að jólum eru margir að velta fyrir sér hátíðarmatnum og örðum sem tengist jólum. Hér á síðunni er ýmis fróðleikur um jólin og jólamatinn og því viljum við benda ykkur á fyrirspurnir og svör sem tengjast jólunum...

Malt á meðgöngu

Lax, lax, lax og aftur lax

Jólabarn og jólaboð

Heitreyktur lax

Kaldreyktur lax, taðreyktur lax

Hangikjötið

Skata og brjóstagjöf

Skata, síld, reyktur og grafinn lax á meðgöngu

Jólaís og Eggin í ísnum

Hráskinka, parmaskinka

Reyktur fiskur

Bearnaisesósa og tertukrem úr hráum eggjum

Hamborgarhryggur soðinn upp úr rauðvíni

Hnetusteik um jólin

Verið svo duglegar að drekka vatn með hátíðarmatnum því það hjálpar til við að losa salt úr líkamanum. Stuttir göngutúrar eru líka hollir fyrir flestar.

Hafið það sem allra best.

Jólakveðja frá ljósmæðrunum á www.ljosmodir.is



Ráðstefna um lyfjameðferð barnshafandi kvenna16.11.2009 11:02:16

Ráðstefna á vegum 5. árs nema í klínískri lyfjafræði við Háskóla Íslands verður haldin þann 17. nóvember 2009 í fyrirlestrasalnum Bratta í Kennaraháskólabyggingunni í Stakkahlíð. Ráðstefnan hefst tímanlega klukkan 9:00 og stendur til 15:30. (sjá dagskrá hér að neðan).

Gott væri ef áhugasamir myndu skrá komu sína á facebook síðu ráðstefnunnar en slík skráning er ekki nauðsynleg. Facebook síða ráðstefnunnar: http://www.facebook.com/event.php?eid=297969900301&index=1

--- ATHUGIÐ AÐ EKKERT KOSTAR Á RÁÐSTEFNUNA ---

Dagskrá

Almennt. Áhrif lyfja á fóstur og meðgöngu
Fundarstjóri: Bjarki Þorvaldur Sigurbjartsson

9:00-9:15 Ingibjörg Sigurðardóttir
Áhrif lyfja á fóstur. Hver er áhættan og flokkun lyfja.

9:15-9:30 Helga Hrund Guðmundsdóttir
Þroskaferli fósturs og áhrif lyfja mismunandi tímabilum fóstursins

9:30-9:45 Aðalheiður Eggertsdóttir
Áhrif lyfja á fylgju

9:45-10:00 Guðbjörg Jónsdóttir
Áhrif lyfja á hríðir og fæðingarferlið

10:00-10:15 Viðar Helgi Guðjohnsen
Lyfjafræðilega þjónusta og ráðgjöf til barnshafandi kvenna

10:15-10:30 KAFFI

Meðferð barnshafandi kvenna við langvarandi sjúkdómum
Fundarstjóri: Tinna Davíðsdóttir

10:30-10:45 Íris Hrönn Magnúsdóttir
Meðhöndlun sykursýkis I og II

10:45-11:00 Finnur Freyr Eiríksson
Meðhöndlun meðgöngusykursýkis á meðgöngu

11:00-11:15 Bára Knútsdóttir
Meðhöndlun skjaldkirtilssjúkdóma á meðgöngu

11:15-11:30 María Sif Sigurðardóttir
Meðhöndlun þunglyndis og flogaveikis á meðgöngu

11:30-11:45 Baldur Finnsson
Meðhöndlun astma og sjálfsónæmissjúkdóma á meðgöngu

11:45-13:00 MATARHLÉ

Meðhöndlun alvarlegra sjúkdóma á meðgöngu
Fundarstjóri: Aðalheiður Eggertsdóttir

13:00-13:15 Ragnheiður Helga Pálmadóttir Meðhöndlun blóðtappa á meðgöngu

13:15-13:30 Margrét Lilja Heiðarsdóttir
Meðhöndlun sýkinga á meðgöngu

13:30-13:45 Áslaug Dögg Karlsdóttir
Meðhöndlun HIV og lifrarbólgu C á meðgöngu

13:45-14:00 Íris Rún Þórðardóttir
Meðhöndlun krabbameins á meðgöngu

14:00-14:15 Bjarki Þorvaldur Sigurbjartsson Lyfjameðferð á fóstrum, á
meðgöngu

14:15-14:30 KAFFI

Notkun og misnotkun náttúruefna og ávanabindandi efna á meðgöngu
Fundarstjóri: Viðar Helgi Guðjohnsen

14:30-14:45 Dóra Björg Ingadóttir
Misnotkun tóbaks, áfengis, ávana og fíkniefna á meðgöngu

14:45-15:00 Linda Rós Björnsdóttir
Ofnotkun fæðubótarefna og vaxtarörfandi efna á meðgöngu

15:00-15:15 Tinna Davíðsdóttir
Notkun náttúruefna á meðgöngu

15:15-15:30 Hrönn Ágústsdóttir
Notkun náttúrulyfja á meðgöng

15:30-15:45 Brynja Dís Sólmundsdóttir
Bólusetningar á meðgöngu t.d. við inflúensu H1N1


--- ATHUGIÐ AÐ EKKERT KOSTAR Á RÁÐSTEFNUNA ---



Takmarkaðar heimsóknir á Landspítala vegna svínaflensu23.10.2009 09:54:22

Farsóttanefnd Landspítala hefur mælst til að almenningur takmarki  heimsóknir sínar til sjúklinga á sjúkrahúsinu eins og kostur er. Margar deildir hafa þegar takmarkað heimsóknir og er fólk vinsamlegast beðið að virða þær takmarkanir. Fólk sem hefur einkenni flensunnar á borð við hálssærindi, hita, beinverki og hósta er beðið um að koma alls ekki í heimsókn á spítalann, aðrir aðeins ef þeir eiga brýnt erindi og þá í samráði við starfsfólk viðkomandi deildar.

Vegna þessa takmarkana verður ekki boðið upp á „Opið hús“ á fæðingardeild um óákveðinn tíma.



Kvöldmjólk á kvöldin - morgunmjólk á morgnana!12.10.2009 12:22:11

Þegar barni er gefin brjóstamjólk sem móðirin hefur áður mjólkað úr brjóstum sínum getur það skipt máli hvenær tíma sólarhringsins sú mjólk var mjólkuð og hvaða tími sólarhringsins er þegar barninu er gefin mjólkin. Samkvæmt rannsókn sem framkvæmd var á Spáni inniheldur brjóstamjólkin mismunandi mikið magn af efnum yfir sólarhringinn sem hafa áhrif á svefn. Morgunmjólkin inniheldur meira af náttúrlegum örvandi efnum á meðan kvöldmjólkin innheldur meira af róandi efnum sem hjálpa börnunum að sofa. Rannsakendur skoðuðu reyndar ekki áhrif brjóstamjólkurinnar á börnin en samkvæmt þessu er það mögulegt að ef morgunmjólk er gefin fyrir svefninn og kvöldmjólk á morgnana geti það truflað svefn þeirra.
Þetta var lítil rannsókn og ekki hægt að fullyrða neitt út frá þessum niðurstöðum annað en það að magn ákveðinna kirna í brjóstamjólkinni sérstaklega kirnanna 5’AMP, 5’UMP og 5’GMP er hærra að næturlagi. Aukið magn þessara kirna í brjóstamjólkinni að næturlagi gefur til að kynna að þau hafi eitthvað með það að gera að hafa róandi og svæfandi áhrif á börnin.


Heimild: http://www.nhs.uk/news/2009/10October/Pages/Breast-milk-ingredients-and-sleep.aspx



Kæling nýbura sem verða fyrir súrefnisskorti í fæðingu minnkar líkur á heilaskaða9.10.2009 14:52:57

Nýleg rannsókn sýnir að börn sem verða fyrir súrefnisskorti í fæðingu verði síður fyrir heilaskaða ef þau eru kæld niður.

Rannsakendur komust að því að börn sem urðu fyrir súrefnisskorti í fæðingu voru 57% líklegri til að sleppa við heilaskaða ef þau voru kæld niður um 4 gráður. Í rannsókninni voru bornir saman tveir hópar. Börnin í samanburðarhópnum fengu hefðbundna meðferð og aðhlynningu á vökudeild eftir fæðingu en líkami barnanna í rannsóknarhópnum var kældur niður í 33,5 °C í 72 klukkustundir þau fengu einnig hefðbundna meðferð og aðhlynningu á vökudeild.

Þessar niðurstöður voru birtar í tímaritinu The New England Journal of Medicine þann 1. október 2009 en einnig má lesa um þessa frétt á  http://www.nhs.uk/news/2009/10October/Pages/cold-treatment-eases-baby-brain-damage.aspx



Alþjóðleg brjóstagjafavika 21.-27. september 200922.9.2009 09:54:36

Alþjóðlega brjóstagjafavikan verður haldin hátíðleg á Íslandi dagana 21.-27. september 2009. Þetta er í annað sinn sem vikan er haldin formlega á Íslandi. Til þess að minna á mikilvægi brjóstagjafar verða ýmsar uppákomur alla vikuna.

Sjá nánar á http://brjostagjafavika.org/

 



Brjóstagjöf ungbarna besta vörnin gegn Svínaflensu3.8.2009 13:21:33

Mæður nýbura og ungbarna eru nú eðlilega áhyggjufullar vegna  Svínaflensufaraldurs. Þær hafa þó flestar í fórum sínum sterkt vopn fyrir börnin sín sem er brjóstagjöfin. Í brjóstamjólk eru efni sem styrkja varnarkerfi nýbura gegn pestum.

Brjóstabörn geta þó eftir sem áður orðið veik en fá þá venjulega veikina væga.

Ef mæður smitast sjálfar er mikilvægt að þær haldi brjóstagjöf  áfram. Það er liður í að hjálpa barninu að verjast. Þær hafa að öllum líkindum smitast nokkrum dögum áður en þær urðu einkenna varar. Á þeim tíma er líkami þeirra byrjaður að mynda mótefni. Þau mótefni berast með mjólkinni til barnsins og hjálpar þeim að verjast veikinni. Ekki er vitað hvort veiran sjálf kemst yfir í mjólkina en það er talið ólíklegt miðað við rannsóknir á fyrri faröldrum. Ef mæður treysta sér ekki til að hafa barnið í svo náinni snertingu í veikindunum er sjálfsagt að mjólka brjóstin og fá ósmitaðan fjölskyldumeðlim til að gefa barninu hana.

Það er engan veginn hægt að koma í veg fyrir að móðir smiti barn sitt en það er hægt að minnka líkurnar. Góður handþvottur er mikilvægur sem aldrei fyrr. Það er líka mælt með að veikar mæður noti maska við umönnun barna sinna á meðan smitskeiðið stendur yfir (1 degi fyrir einkenni-7 dögum eftir að einkenni byrjuðu) því ekki er alltaf auðvelt fyrir móður með barn í höndunum að grípa bréfþurrku.
Aðalsmitleiðir eru hósti og hnerri eða réttara sagt öndunarfæradropar sem berast með hósta og hnerra. Þannig að fólk þarf að vera í nokkuð nánu sambandi til að smitast. Veiran getur líka lifað í dropum sem lenda á yfirborði þannig að almennt hreinlæti skiptir máli. Það er skynsamlegt að forðast mannmarga staði og samneyti við fólk með Svínaflensu ef ungbarn er á heimilinu.

Ef barnið veikist er mikilvægt að það fái brjóstamjólkina áfram. Eins og áður segir fær það mótefni með henni og einnig er algengt ef börn fá hita að þau þurfi að sjúga brjóst jafnvel oftar en endranær til að uppfylla aukna vökvaþörf. Það ætti ekki að gefa barninu aðra vökva t.d. vatn eða þurrmjólk því það veikir varnarmátt brjóstamjólkurinnar. Þetta gildir til 6 mánaða aldurs. Eftir það byrja margar mæður að kynna aðra fæðu fyrir börnum sínum sem er eðlilegt. Brjóstamjólkin á þó að vera í aðalhlutverki áfram og á tímum Svínaflensu er skynsamlegt að halda í brjóstagjöfina jafnvel ívið lengur en ætlað var.

Það er í góðu lagi fyrir mæður með börn á brjósti að taka inn flensulyfin sem eru í boði. Þau á að taka sem allra fyrst eftir að einkenna verður vart en það getur líka gagnað að taka þau fyrribyggjandi ef mikið samneyti hefur verið við smitaðan einstakling. Börnum sem veikjast má líka gefa flensulyf hvort sem þau eru á brjósti eða ekki. Þessi lyf á auðvitað eingöngu að taka inn í samráði við lækni. Skammtar fara þá eftir aldri. Það er líka í lagi að bólusetja konur sem eru með barn á brjósti.


Katrín Edda Magnúsdóttir
ljósmóðir og brjóstagjafaráðgjafi
3. ágúst 2009.

Heimild: http://www.cdc.gov/h1n1flu/clinician_pregnant.htm

 



Nýtt á Íslandi!! Kerrupúl27.7.2009 16:08:30

Viltu komast í gott form? Vera úti og anda að þér fersku lofti og njóta samverunnar með barninu þínu í leiðinni?

Þá er kerrupúl fyrir þig!  Ódýrt, einfalt og  við allra hæfi.

Kerrupúl er miklu meira en bara göngutúr úti í náttúrunni, það er alhliða æfingakerfi, frá toppi til táar, fyrir mæður sem vilja rækta líkama og sál eftir barnsburð. Barnið fær að koma með og njóta útiverunnar og samverunnar með móður og öðrum börnum.

Kennarar eru þær Melkorka Árný Kvaran, íþróttakennari og matvælafræðingur og Halla Björg Lárusdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir, samtals eiga þær 7 börn á aldrinum 1 árs til 14 ára.
Námskeiðin eru haldin í Laugardalnum og hefjast 10. ágúst.
Allar nánari upplýsingar er að finna á www.kerrupul.is



Útgáfa bókarinnar Lausnarsteinar. Ljósmóðurfræði og ljósmóðurlist24.5.2009 13:32:49

Nú á dögunum kom út bókin Lausnarsteinar: Ljósmóðurfræði og Ljósmóðurlist. Bókin er samvinnuverkefni námsbrautar í ljósmóðurfræði við Hjúkrunarfræðideild HÍ og Ljósmæðrafélags Íslands, en hún er gefin út í tilefni 90 ára afmælis félagsins.

Bókin er ritrýnd fræðibók og í henni eru 13 kaflar sem ýmist eru fræðilegt  yfirlit yfir tiltekin viðfangsefni ljósmóðurfræðinnar eða lýsing á rannsóknum ljósmæðra sem unnar hafa verið á síðustu árum. Jafnframt er henni ætlað að minna á arf fortíðarinnar og hvernig ljósmæður nútímans sækja til hans leynt og ljóst. Viðtöl eru við fimm ljósmæður sem áttu ómældan þátt í að efla veg og virðingu stéttar sinnar á liðinni öld.

Þessi bók ætti því að höfða til allra þeirra sem láta sig varða fæðingu barna og gildi þekkingar fyrir farsælt líf.
Formála ritar Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor.
Ritstjórar eru: Helga Gottfreðsdóttir og Sigríður Inga Karlsdóttir.

Frekari upplýsingar veitir Helga Gottfreðsdóttir helgagot@hi.is



Heimurinn þarfnast ljósmæðra, nú sem aldrei fyrr!20.4.2009 11:49:21

Alþjóðadagur ljósmæðra 5. maí 2009: Heimurinn þarfnast ljósmæðra, nú sem aldrei fyrr!

Til að hægt verði að ná þúsaldarmarkmiðum Sameinuðuþjóðanna verður að fjölga ljósmæðrum um 350.000 fyrir árið 2015.  Sextíu prósent barnshafandi kvenna í Suður- Asíu og Afríkulöndum norðan Sahara, hafa ekki aðgang að fagfólki.

Ljósmæður eru í lykilhlutverki til að ná fimmta þúsaldarmarkmiði Sameinuðuþjóðanna: Bæta heilsu barnshafandi kvenna
Fjögur samtök á vegum Sameinuðuþjóðanna hafa sameinast um aðstoð við þau ríki sem hafa hæstan mæðradauða og hafa tiltekið hann sem mesta ójafnvægið heilbrigðisþjónustu í heiminum þar sem 99% mæðradauða eiga sér stað í þróunarlöndum.  Þessi samtök hafa sett sér að vinna með ríkisstjórnum og félagasamtökum í þessum löndum til að vekja athygli á bráðum skorti á heilbrigðisstarfsfólki, sérstaklega ljósmæðrum.

Ljósmæður veita nýburum faglega umönnun til að ná fjórða þúsaldarmarkmiði Sameinuðuþjóðanna: Minnka barnadauða
Í Suður-Asíu og Afríkulöndum norðan Sahara deyja árlega meira en 1 milljón barna á fyrsta sólarhring eftir fæðingu, vegna skorts á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þar á meðal ljósmæðraþjónustu.  Allar ljósmæður í heiminum skilja að hver barnshafandi kona á rétt á að fæða í öruggu og styðjandi umhverfi fyrir hana sjálfa og barnið hennar.  Ljósmæðraþjónusta inniheldur bráðaþjónustu fyrir bæði móður og barn.

Ljósmæður eru tilvaldar til að ná sjötta þúsaldarmarkmiði Sameinuðu þjóðanna: Berjast gegn HIV/AIDS, Malaríu og öðrum sjúkdómum.
Þúsundir barnshafandi kvenna og hundruðir þúsunda nýbura deyja árlega vegna sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir.  Afríkuríki norðan Sahara hafa viðurkennt lykilhlutverk ljósmæðra í að fækka þessum dauðsföllum þar sem ljósmæður vinna í nánum tengslum við barnshafandi konur, fyrirbyggja, greina, meðhöndla og fræða.

Það krefst alþjóðlegrar samvinnu í ásetningi um að byggja upp sterkar og vel menntaðar ljósmæður í starfhæfum heilbrigðiskerfum að ná 4., 5. og 6. þúsaldarmarkmiðum Sameinuðuþjóðanna.

Nauðsyn þess að ná 4.,5. og 6. þúsaldarmarkmiði Sameinuðuþjónanna á næstu 6 árum, eykst daglega.  Alþjóðasamtök ljósmæðra og ljósmæður heimsins eru staðráðnar í að vinna með öðrum samtökum í að ná þessum markmiðum.  Alþjóðasamtök ljósmæðra hafa nú 91 aðildarfélag með 250000 ljósmæðrum í rúmlega 80 löndum og hefur nýlega tekið höndum saman með UNFPA við að efla ljósmæðramenntun og –félög í 40 lágtekjulöndum.  ICM hefur einnig hafið samstarf með the White Ribbon Alliance (WRA) og Sarah Brown´s Maternal Mortality Campaign til að vekja athygli almennings og auka pólitískan þrýsting á G( og G20 löndin til að gera heilsu mæðra og barna að alþjóðlegu forgangsmáli.  ICM meinar að heilbrigðiskerfi verða að vera styrkt og ljósmæðrum fjölgað til að koma í veg fyrir ónauðsynlegan dauða milljóna kvenna og barna þeirra sem munu deyja á næstu sex árum ef ekki er þegar gripið til aðgerða.

Heimurinn þarfnast ljósmæðra, nú sem aldrei fyrr!

Frekari upplýsingar gefur forseti ICM Bridget Lynch eða aðalritari ICM Agneta Bridges í síma +31 70 3060520 eða í tölvupósti a.bridges@internationalmidwives.org

(Lausleg þýðing á fréttatilkynningu frá Alþjóðasamtökum ljósmæðra (ICM) sem sjá má á frummálinu hér að neðan. Þýðing - Guðlaug Einarsdóttir)

Midwife numbers must be expanded to achieve Millennium Development Goals 4, 5 and 6 by 2015

350,000 more midwives are needed! 

The UN Millennium Development Goals Report 2008 states: The high risk of dying in pregnancy or childbirth continues unabated in sub-Saharan Africa and Southern Asia … little progress has been made in saving mothers’ lives.  Over 60% of women in these areas of the world still do not have skilled care during childbirth. This report notes better progress for all of the MDG goals, apart from MDG5!2  Yet all the goals are linked: until poverty and hunger are reduced, until diseases such as HIV and malaria are controlled, until there is more equality between men and women, until every child completes primary education, until all women have access to reproductive healthcare - then mothers and babies will continue to die.

 

         Midwives are key healthcare providers in achieving MDG 5: Improving Maternal Health3

That is the clear message coming from the WHO, UNFPA, UNICEF and the World Bank: the four UN agencies that have recently united to pledge increased support to countries with the highest maternal mortality rates. They identified mortality in pregnancy and childbirth as the “highest health inequity in the world with over 99% of deaths occurring in the developing world”. They committed to work with governments and civil society organizations to address the “urgent need for skilled health workers, particularly midwives”.4  

 

         Midwives provide skilled newborn care to achieve MDG 4: Reduce Child Mortality5

Every year in sub-Saharan Africa and South Asia more than 1 million infants die within their first 24 hours of life due to lack of adequate health services, including midwifery care.  The midwives of the world understand that every childbearing woman deserves to give birth within a safe and supported environment for herself and her baby.  Skilled midwifery care includes emergency care for both mothers and their newborns. 

 

         Midwives are essential to achieve MDG 6: Combat HIV/AIDS, Malaria and Other Diseases

Thousands of pregnant women and hundreds of thousands of newborns die each year due to preventable disease.  Throughout sub-Saharan Africa governments have recognized the primary role of midwives in reducing these devastating deaths. As essential frontline workers, midwives provide vaccines to newborns and children; they identify, counsel and treat pregnant women with HIV and AIDS, thus preventing mother-to-child transmission of HIV; they also provide anti-malarial drugs and bed nets to vulnerable pregnant women and their children, saving lives and promoting health. 

 The achievement of MDGs 4, 5 and 6 requires a global commitment to grow a strong, well educated midwifery workforce within functioning health service delivery systems.

 The sense of urgency to achieve MDGs 4, 5 and 6 in the next six years is increasing daily. The ICM and the midwives of the world are committed to working with global partners to achieve these goals. The Confederation has grown to 91 member associations with 250,000 midwives in over 80 countries and has recently partnered with the UNFPA to strengthen midwifery education, regulation and associations in 40 low income countries. The ICM has also joined the White Ribbon Alliance (WRA) and Sarah Brown’s Maternal Mortality Campaign to increase public awareness and apply political pressure on the G8 and G20 to make maternal and newborn health a global priority.  The ICM recognizes that health delivery systems must be strengthened and the midwifery workforce must be increased to stop the needless deaths of millions of women and their newborns who will die in the next six years if immediate action is not taken now.

The world needs midwives now more than ever!

For more information contact ICM President Bridget Lynch or ICM Secretary General Agneta Bridges at +31 70 3060520 or e-mail a.bridges@internationalmidwives.org.

 1. The World Health Report: Make every mother and child count. World Health Organization, 2005.

2. The Millennium Development Goals Report 2008. New York, USA: UN, 2008

3. MDG 5 Target: Reduce by three quarters, between 1990 and 2015, the maternal mortality ratio. UN, 2000.

4. Accelerating efforts to save the lives of women and newborns. WHO/UNFPA/UNICEF/World Bank. Joint statement: Sept. 2008.

5. MDG 4 Target: Reduce by two thirds, between 1990 and 2015, the under-five mortality rate. UN.
 



Brjóstamjólk besta næringin fyrir ungbörn27.3.2009 10:16:13

Fyrir skömmu birtust fréttir um að danskir vísindamenn sem mælt hafa eiturefni í brjóstamjólk teldu ekki ráðlegt að gefa börnum hana eftir fjögurra mánaða aldur. Þetta gengur þvert á ráðleggingar danskra heilbrigðisyfirvalda sem vísa þessu á bug. Landlæknisembættið, Lýðheilsustöð og Miðstöð heilsuverndar barna leggja mikla áherslu á að brjóstamjólk sé besta næring fyrir ungbörn, enda er talið að kostir móðurmjólkur sem helsta næring barna á fyrsta ári vegi miklum mun þyngra en gallar.

Rannsóknir hafa sýnt heilsufarslega jákvæð áhrif móðurmjólkur fyrir heilsu ungbarna og móður. Það á einnig við um brjóstagjöf eftir fjögurra mánaða aldur. Niðurstöður undanfarinna ára benda til þess að lengd brjóstagjafar hafi einnig áhrif á heilsu síðar, þ.e. á heilsufarsþætti meðal skólabarna og fullorðinna (sjá nánar vefsíðu Rannsóknarstofu í næringarfræði Landspítala:  http://www.landspitali.is/naering). Auk þess sem fyrirliggjandi eru yfirlitsgreinar (metaanalysur) um efnið.

Styrkur þrávirkra lífrænna efna (t.d. PCB, DDT, dioxin) hefur lækkað í blóði og brjóstamjólk síðastliðin ár eftir að notkun efnanna var mjög takmörkuð eða bönnuð. Það á einnig við hér á landi og hefur Kristín Ólafsdóttir, dósent við Læknadeild HÍ, birt niðurstöður efnagreininga á PCB og fleiri efnum í blóði mæðra fyrir nokkrum árum. Samkvæmt hennar rannsóknum hefur styrkurinn lækkað verulega síðastliðin 10 ár. Einnig hefur nýleg greining á kvikasilfri í blóði ungra kvenna sýnt lágan styrk.

Það er mikilvægt að mæla óæskileg efni í brjóstamjólk og reyndar öðrum mat líka. Kosti og galla næringar þarf ætíð að vega og meta í heild sinni. Til að draga úr magni eiturefnanna er mæðrum með börn á brjósti ráðlagt að borða fjölbreytta fæðu en jafnframt hafa í huga að í einstaka sjávarafurðum, svo sem hákarli, sverðfiski og stórflyðru, safnast aðskotaefni (t.d. þungmálmar og þrávirk lífræn efni, svo sem PCB-efni), sem er best að forðast. PCB-efni geta einnig safnast fyrir í lifur og fitu sumra fisktegunda og sjávarspendýra. Þær fisktegundir sem eru oftast á borðum hér á landi, t.d. ýsa, þorskur, smálúða, steinbítur, skötuselur, silungur og lax, eru heilnæm fæða sem konur með barn á brjósti ættu að njóta sem oftast.

Sjá nánar í bæklingunum Matur og meðganga  og Næring ungbarna

Anna Björg Aradóttir,
yfirhjúkrunarfræðingur Landlæknisembættinu.

Þessi frétt er tekin af vef Landlæknisembættisins



Ljáðu mér eyra19.3.2009 23:42:45

Öllum konum sem fætt hafa á Landspítalanum stendur til boða að bóka viðtal við ljósmóður u.þ.b. 4-6 vikum eftir fæðingu ef þær vilja ræða fæðingarreynslu sína. Þær geta valið að fá viðtal við ljósmóður sem veitti þeim umönnun í fæðingu. Ef þær kjósa að hitta aðra ljósmóður þá er það sjálfsagt og verður þá einhver önnur ljósmóðir í viðtalinu. Viðtalsþjónustan nefnist Ljáðu mér eyra og verður jafnframt veitt þar  áfram þjónusta fyrir konur sem fæddu fyrir einhverjum árum síðan eins og verið hefur.  Ljáðu mér eyra viðtölin bókast á göngudeild mæðraverndar í s. 543 3253 á virkum dögum milli kl. 09 og 15.



Opið hús! Fræðsla og stuðningur við brjóstagjöf.28.1.2009 17:51:01

Fræðsla og stuðningur við brjóstagjöf

Allir velkomnir – einnig verðandi mæður, feður og ömmur kl.11:00 – 12:30 í Bláa sal Grensáskirkju við Háaleitisbraut 66 við hliðina á Austurveri, inngangur í horninu. Arnheiður Sigurðardóttir lýðheilsu-og hjúkrunarfræðingur og IBCLC brjóstagjafaráðgjafi og Hulda Sigurlína Þórðardóttir, hjúkrunarfræðingur, IBCLC brjóstagjafaráðgjafi og meistaranemi í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands.


Efni fundanna:

  • 3. febrúar   Næturgjafir, útivinna og endir brjóstagjafar
  • 10. febrúar Börn á brjósti eftir eins árs aldur
  • 17. febrúar Ávinningur af brjóstagjöf - fyrir móður og barn
  • 24. febrúar Fyrsta fasta fæðan
  • 3. mars      Næturgjafir, útivinna og endir brjóstagjafar
  • 10. mars    Börn á brjósti eftir eins árs aldur
  • 17. mars    Ávinningur af brjóstagjöf - fyrir móður og barn
  • 24. mars    Fyrsta fasta fæðan
  • 31. mars    Næturgjafir, útivinna og endir brjóstagjafar
  • 7. apríl      Páskafrí
  • 14. apríl    Börn á brjósti eftir eins árs aldur
  • 21. apríl    Ávinningur af brjóstagjöf - fyrir móður og barn
  • 28. apríl    Fyrsta fasta fæðan
  • 5. maí       Næturgjafir, útivinna og endir brjóstagjafar
  • 12. maí     Börn á brjósti eftir eins árs aldur
  • 19. maí     Ávinningur af brjóstagjöf - fyrir móður og barn
  • 26. maí     Fyrsta fasta fæðan

 



Bráðum koma blessuð jólin...11.12.2008 11:44:47

Þegar líður að jólum eru margir að velta fyrir sér hátíðarmatnum og örðum sem tengist jólum. Hér á síðunni er ýmis fróðleikur um jólin og jólamatinn og því viljum við benda ykkur á fyrirspurnir og svör sem tengjast jólunum...

Malt á meðgöngu

Lax, lax, lax og aftur lax

Jólabarn og jólaboð

Heitreyktur lax

Kaldreyktur lax, taðreyktur lax

Hangikjötið

Skata og brjóstagjöf

Skata, síld, reyktur og grafinn lax á meðgöngu

Jólaís og Eggin í ísnum

Hráskinka, parmaskinka

Reyktur fiskur

Bearnaisesósa og tertukrem úr hráum eggjum

Hamborgarhryggur soðinn upp úr rauðvíni

Hnetusteik um jólin

Verið svo duglegar að drekka vatn með hátíðarmatnum því það hjálpar til við að losa salt úr líkamanum. Stuttir göngutúrar eru líka hollir fyrir flestar.

Hafið það sem allra best.

Jólakveðja frá ljósmæðrunum á www.ljosmodir.is



Alþjóðleg brjóstagjafavika6.10.2008 13:16:17

Alþjóðlega brjóstagjafavikan verður haldin hátíðleg dagana 6.-12. október á Íslandi. Vikan hefur verið haldin hátíðleg víða um heim undanfarin sautján ár.   Í ár er þemað stuðningur við móður: stefnum að sigri. Vikan er haldin í fertugustu og fyrstu viku ársins sem er táknrænt fyrir meðgöngulengd  kvenna.   Yfir 120 lönd taka þátt í að halda vikuna hátíðlega.  Alþjóðlega brjóstagjafavikan er haldin til þess að auka þekkingu á brjóstagjöf, vernda hana og styðja.  Eitt markmið vikunnar er að opna enn betur augu almennings fyrir mikilvægi brjóstagjafar og mikilvægi þess að hver og einn leggi sitt af mörkum til þess að styðja við mjólkandi mæður og tryggja þannig börnum, besta upphafið sem völ er á.

Eins og fyrr segir þá er þema vikunnar í ár Stuðningur við móður: stefnum að sigri en með þessu slagorði leitast skipuleggjendur brjóstagjafavikunnar og WABA (world alliance for breastfeeding action) eftir auknum stuðning fyrir mjólkandi mæður svo þær nái  sínum markmiðum.  Að umhverfi þeirra bjóði uppá að brjóstagjöf sé eina fæða ungbarna til sex mánaða aldurs og svo með næringarríkum mat til tveggja ára og jafnvel lengur, eins og Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) mælir með.  Mæður þurfa stuðning við brjóstagjöf sína, rétt eins og íþróttamenn sem stefna á Ólympíuleikana.  Móðir með barn á brjósti þarf stuðning til brjóstagjafar frá maka, fjölskyldu, vinum, vinnuveitendum, samstarfsmönnum, stuðningshópum, yfirvöldum og samfélaginu öllu.

Dagskráin í ár er fjölbreytt og spennandi. Mánudaginn 6.október verður opnuð ljósmyndasýning á Kaffi Hljómalind.  Þriðjudaginn 7. oktober verður kynning á því hvernig er hægt að gefa brjóst í burðarpoka.  Miðvikudagurinn er tileinkaður fyrirburum en þá heldur Arnheiður Sigurðardóttir hjr.fr og brjóstagjafaráðgjafi IBCLC fyrirlestur um reynslu kvenna af brjóstagjöf barna fæddum undir 1500 gr eða fyrir 32.viku. í KHÍ.  Á föstudaginn verður efnt til fjöldagjafar í Kaffitár í Borgartúni. Hápunktur vikunnar er svo á laugardaginn 11.október en þá er glæsilegt málþing í KHÍ.  Alls verða fjórir fyrirlestrar, um brjóstagjöf.  Aðalfyrirlesarinn Mette Lawlorkemur frá Noregi og fjallar um brjóstagjöf og mikilvægi stuðnings.  Vikunni lýkur á sunnudaginn þegar velunnurum og áhugamönnum um brjóstagjöf er boðið til kaffisamsætis á Kaffi Hljómalind milli 14.00- 16.00.



Ljósmæður samþykkja miðlunartillöguna23.9.2008 13:31:36

Eins og flestir vita nú þegar samþykktu ljósmæður miðlunartillögu ríkissáttasemjara síðastliðinn föstudag og hefur því öllum verkföllum verið aflýst.  Starfsemi ljósmæðra er óðum að komast í samt horf en þær hafa hafi í nógu að snúast við að vinna upp þá daga sem konur komust ekki í skoðanir t.d í mæðravernd og sónar.



Bæklingaröð LMFÍ
Ljósmæðrafélag Íslands
Gullkorn
Slysavarnir
Áhugavert efni
Félagsleg réttindi
Innra net
Notandi:
Lykilorð: