Meðgönguvernd

 

Upplýsingar um meðgönguvernd er að finna á vef Miðstöðvar mæðraverndar og í bæklingnum Velkominn í meðgönguvernd.

Bæklingurinn er einnig til á ensku - Welcome to antenatal care.


Klínískar leiðbeiningar um meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu

Landlæknisembættið gaf út í apríl 2008 klínsíkar leiðbeiningar um meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu. Þær eru ætlaðar ljósmæðrum, læknum  og barnshafandi konum. 

Leiðbeiningarnar byggja á því að meðganga er eðlilegt lífeðlisfræðilegt ferli og inngrip í það ferli skulu hafa þekkta kosti og vera ásættanleg fyrir hina barnshafandi konu.

Á vef  Landlæknisembættisins eru klínískar leiðbeiningar skilgreindar á eftirfarandi hátt: 
„Klínískar leiðbeiningar (clinical guidelines) eru leiðbeiningar (ekki fyrirmæli) um verklag, unnar á kerfisbundinn hátt, til stuðnings starfsfólki í heilbrigðisjónustu og almenningi við ákvarðanatöku við tilteknar aðstæður. Þær taka mið af bestu þekkingu á hverjum tíma og eru lagðar fram í því skyni að veita sem besta meðferð með sem minnstri áhættu án óhóflegs kostnaðar“. 


Fræðsla til verðandi foreldra er tæplega 15 mínútna langt myndband sem nemar í hjúkrunarfræði á öðru ári við Háskólann á Akureyri (Barbara Ösp Ómarsdóttir, Elín Anna Hreinsdóttir, Guðfinna Eðvarðsdóttir og Steinunn Guðlaug Skúladóttir) unnu á vorönn 2007. Í myndbandinu koma fram helstu markmið mæðraverndar á Íslandi, hvernig mæðraskoðun fer fram og hvaða ástæður liggja að baki þeim rannsóknum og athugunum sem þar eru gerðar.

 

Bæklingaröð LMFÍ
Ljósmæðrafélag Íslands
Gullkorn
Slysavarnir
Áhugavert efni
Félagsleg réttindi
Innra net
Notandi:
Lykilorð: