Vikurnar 
Upphafið
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
 

Vika fyrir viku - frá eggi til tvíbura

Þýðing og staðfæring á tvíburameðgöngudagatali bókarinnar Bogen om tvillinger 0-10 år – myter og virkelighed om graviditet, födsel og tvillingeforholdet, eftir Joan Tönder Grönningen

Þýtt og staðfært með góðfúslegu leyfi Joan Tönder Grönåning. Bókin er sérlega hagnýt, bæði á meðgöngu og í daglegu amstri tvíburafjölskyldna.

Panta má bókina af slóðinni: www.bogenomtvillinger.dk

Mars 2007,

Guðlaug Einarsdóttir,
ljósmóðir, tvíburi og tvíburamóðir.


 Vika fyrir viku – frá eggi til tvíbura

Kaflinn er skrifaður fyrir þig sem átt von á tvíburum en leyfðu verðandi föður að lesa líka. Það gæti verið góð leið fyrir hann að fylgjast með meðgöngunni sem hann annars gæti orðið útundan frá þar sem hann finnur ekki fyrir breytingunum á eigin líkama eins og þú.
Ef lýsingin á ákveðinni viku passar ekki fyrir þig, lestu þá vikurnar í kring. Eins og allir vita þá eru tvær meðgöngur aldrei eins. Sumar tvíburamæður finna hreyfingar í 16. viku, aðrar ekki fyrr en í 20.viku og hvortveggja er eðlilegt. Sumar finna fyrir fyrirvaraverkjum frá 14. viku, aðrar bara allra síðustu vikurnar og sumar tvíburamæður finna alls enga fyrirvaraverki. Ef þú finnur fyrir skyndilegum breytingum eða einhverju „undarlegu“ á meðgöngunni, hafðu þá samband við ljósmóðurina þína eða lækninn. Tvíburameðganga hefur aukna áhættu miðað við meðgöngu eins barns og þrátt fyrir að flestar tvíburameðgöngur gangi eðlilega fyrir sig er ástæða til að fara sérstaklega vel með sig og vera vakandi fyrir breytingum.

Áætlaður fæðingardagur
Allar ófrískar konur fá áætlaðan fæðingardag reiknaðan út, þ.e. hvenær reiknað er með að börnin fæðist, þrátt fyrir að í rauninni hitti fæst börn á þann fæðingardag. Reyndar eru aðeins 6% barna sem fæðast á áætluðum fæðingardegi og þar af eru mjög fáir tvíburar. Eitt er þó víst, öll börn fæðast á afmælisdeginum sínum. Áætlaður fæðingardagur er reiknaður út á tvennskonar hátt. Annað hvort við að reikna frá fyrsta degi síðustu blæðinga, ef maður veit hann, eða með hjálp sónars. Ef þú hefur orðið ófrísk með hjálp glasafrjóvgunar eða tæknifrjóvgunar þá veistu nákvæman tíma getnaðarins og þá er áætlaður fæðingardagur reiknaður út frá honum.

Áætlaður fæðingardagur með fyrirvara
Ekki leggja allt of mikið upp úr áætluðum fæðingardegi, hann getur breyst milli skoðana.
Fyrsta sinn sem þú færð áætlaðan fæðingardag er líklega hjá lækninum þínum eða ljósmóðurinni þinni, en þegar þú hefur farið í sónar gætir þú fengið annan áætlaðan fæðingardag. Flestir tvíburar fæðast 2-3 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag.

Athugasemdir við viku fyrir viku lýsingarnar
Allar ófrískar konur eru mismunandi og lýsingarnar eru til hliðsjónar en ekki staðreyndir.

Stærð barnanna
Öll fóstur þroskast eins á fyrstu mánuðunum og þar á meðal tvíburar. Eftir 20.viku getur þyngd og stærð verið mjög mismunandi. Sumir tvíburar geta vegið 3700 grömm við fæðingu við 38 vikur og aðrir 2500 grömm og hvort tveggja er innan eðlilegra marka. Almennt vaxa fóstrin mest á lengdina í þriðja til fimmta mánuði, u.þ.b. 5 sm á mánuði en þyngdin eykst mest í áttunda og níunda mánuði, u.þ.b. 700 g á mánuði. Höfuð tvíburana stækka mest í byrjun meðgöngunnar og í þriðja mánuði er höfuðið tæplega helmingurinn af stærð barnanna en í fimmta mánuði er höfuðið einn þriðji af stærð þeirra og við fæðingu er höfuðið einn fjórði af stærð barns. Í viku fyrir viku lýsingunum er meðalstærð og –þyngd fóstranna skráð en þau geta auðvitað verið bæði stærri eða minni án þess að nokkur vandamál séu á ferð. Taktu eftir að fram að 15. viku er lengd fóstranna er gefin upp frá höfði og niður á rass en eftir það er er lengdin líka gefin upp frá höfði og niður á hæl. Í sónar er höfuð fóstursins einnig mælt sem gefur til kynna hvort það vaxi sem skyldi.

Meðgönguvika
Ljósmæður og læknar tala um meðgöngu í vikum og dögum. Annað hvort í fullum vikum eða í þeirri viku sem er að líða þó hún sé ekki að fullu liðin. Þegar við tölum um meðgönguvikur er mikilvægt að gleyma öllu um vikur sem byrja á mánudegi og enda á sunnudegi. Meðgönguvikur eru reiknaðar frá fyrsta degi síðustu blæðinga. Ef þú hefur t.d. haft fyrsta dag síðustu blæðinga á miðvikudegi þá byrja þínar meðgönguvikur líka á miðvikudögum og þú hefur áætlaðan fæðingardag á miðvikudegi.

Dæmi:
10 vikum eftir fyrsta dag síðustu blæðinga er meðgangan fullar 10 vikur og þú byrjar í 11. viku. Sex dögum seinna er meðgangan 10 vikur og 6 dagar, næsta dag er hún fullar 11 vikur eða 11 vikur og 0 dagar. Áætlaður fæðingardagur er við fullar 40 vikur eða 40+0. Í dagatalinu her á eftir er hvortveggja skrifað.

Þá byrjum við...
Þar sem meðgangan er reiknuð út frá fyrsta degi síðustu blæðinga, þ.e. tveimur vikum fyrir getnað, byrja þessar leiðbeiningar í 3. viku – vikunni sem börnin koma undir.

Njóttu meðgöngunnar!



Næsta vika
Bæklingaröð LMFÍ
Ljósmæðrafélag Íslands
Gullkorn
Slysavarnir
Áhugavert efni
Félagsleg réttindi
Innra net
Notandi:
Lykilorð: