Þrjú stig fæðingar

 

Fæðingunni, frá því fyrsu reglulegir samdrættir byrja þar til barnið og fylgjan eru fædd, er skipt upp í þrjú stig:

1. Stig:  Útvíkkunartímabilið
Fyrsta stigið hefst þegar reglulegar hríðar byrja. Vegna hríðanna fer leghálsinn að opnast, styttast og þynnast og undirbúa sig undir að barnið komist þar út. Útvíkkun er metin frá 1 upp í 10 og fysta stiginu lýkur þegar fullri útvíkkun leghálsins er náð eða hún er orðin 10, en þá er leghálsinn ekki lengur fyrirstaða fyrir því að barnið komist í heiminn.

2. Stig:  Rembingstímabilið
Annað stigið hefst þegar konan byrjar að fá rembingstilfinningu og fer að remba barninu í heiminn. Þessu stigi lýkur svo þegar barnið fæðist.

3. Stig:  Fæðing fylgjunnar
Þriðja stigið hefst um leið og barnið er fætt og því lýkur þegar fylgjan og belgirnir eru fædd.

Tímalengd stiganna þriggja
Þetta er mjög mismunandi eftir fæðingum og það er ekki hægt að koma fram með einhverjar heilagar tölur um þetta. Í raun ætti ekki að setja fram neinar tölur, því hver fæðing á að fá að taka sinn tíma svo lengi sem móður og barni heilsast vel. Tímaramminn sem hefur verið settur fram lítur svona út:

                        FRUMBYRJUR                    FJÖLBYRJUR

1. Stig               12-14 klst.                       6-10 klst.

2. Stig                60 mín.                         allt að 30 mín.

3. Stig              20-30 mín.                       20-30 mín.

 

Bæklingaröð LMFÍ
Ljósmæðrafélag Íslands
Gullkorn
Slysavarnir
Áhugavert efni
Félagsleg réttindi
Innra net
Notandi:
Lykilorð: