Heimaþjónusta ljósmæðra

 

Heimaþjónusta er veitt þeim konum sem óska eftir að fara heim eftir fæðingu og njóta þjónustu ljósmóður í sængurlega þar fyrstu vikuna eftir fæðingu.  Mismunandi er eftir byggðarlögum hvort þar er ljósmóðir sem veitir slíka þjónustu og er verðandi mæðrum/foreldrum bent á að leita sér upplýsinga í sínu byggðarlagi hafi þau áhuga á slíkri þjónustu.

Þær konur sem fara í heimaþjónustu þurfa að fara heim 6-36 tímum eftir fæðingu samkvæmt þeim samningi sem gerður er við Tryggingastofnun ríkisins. 

Ákveðnar vinnuleiðbeiningar hafa verið gerðar varðandi þær mæður sem farið geta í heimaþjónustu með barn sitt til að tryggja öryggi móður og barns.  Móðir og barn þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

Móðir

  • Eðlileg meðganga og fæðing.
  • Meðgöngulengd 37–42 vikur.
  • Blóðþrýstingur, hiti og púls innan eðlilegra marka.
  • Leg dregst vel saman og hreinsun/blæðing eðlileg.
  • Konan hefur haft þvaglát og heilsufarsmat bendir til þess að hún nái að tæma þvagblöðruna.
  • Blæðing í fæðingu er innan við 800 ml.
  • Niðurstöður naflastrengsblóðs frá nýbura mæðra sem eru Rhesus neikvæðar liggur fyrir og hefur verið
    fylgt eftir.
  • Ásættanlegar félagslegar aðstæður,konan á samastað og getur leitað eftir stuðningi í nánasta umhverfi.
  • Er sjálfbjarga um daglegar athafnir.
  • Er í andlegu og líkamlegu jafnvægi.

Barn

  • Apgar barnsins við 5 mín. var 7 eða meira.
  • Þyngd barnsins er innan eðlilegra marka miðað við meðgöngulengd.
  • Áður en barn er útskrifað skal tryggt að skimun fyrir alvarlegum heilsufarsvandamálum hafi farið fram.
  • Coombs-próf hjá barni neikvætt (á einungis við ef móðir hefur verið með mótefnamyndun í blóði).
  • Fylgst hefur verið með því að barn hafi nærst og útskilið án vandræða.
  • Ef barn er á brjósti þarf að vera tryggt að móðirin hafi fengið aðstoð við að leggja barnið rétt á brjóst og/eða fylgst hafi verið með því. Móðirin verður að vera fær um að leggja barn á brjóst án aðstoðar.
  • Ef barn er á pelagjöf þarf að vera tryggt að móðir/foreldrar hafi fengið fræðslu um pelagjöf og helstu öryggisþætti er varða hreinlæti, blöndun og hitun þurrmjólkur.

Öll frávik frá þessu þarf að meta hvert fyrir sig í samráði við fæðingarlækni, ljósmóður og barnalækni.  Dæmi eru um að mæður sem hafa verið með börn á vökudeild hafa fengið heimaþjónustu þó barn þeirra sé innlagt á vökudeild. Landlæknisembættið hefur gefið út faglegar leiðbeiningar fyrir heimaþjónustu ljósmæðra en þar er að finna nánari upplýsingar.

Hreiðrið á LSH býður upp á sólarhringssamveru foreldra/forráðamanns og barns eftir fæðingu. Í Hreiðrinu getur móðir fengið að dvelja í 24 klst ásamt barni sínu og barnsföður eða öðrum aðstandanda.  Barnsfaðir eða aðstandandi þarf að greiða fyrir „fæði og húsnæði” en ekki þarf að greiða fyrir móður og barn. 

Á öðrum sængurlegudeildum á landinu getur móðir verið ásamt barni sínu í allt að 36 klst. eftir fæðinguna óski hún eftir heimaþjónustu. Það fer allt eftir aðstæðum á hverjum stað hvort faðir eða annar aðstandandi getur dvalið á sjúkrahúsinu með móður og barni.

Upplýsingar um ljósmæður sem taka að sér heimaþjónsutu er að finna á vef Ljósmæðrarfélags Íslands (félagssvæði).

Bæklingaröð LMFÍ
Ljósmæðrafélag Íslands
Gullkorn
Slysavarnir
Áhugavert efni
Félagsleg réttindi
Innra net
Notandi:
Lykilorð: