Hverjir eiga rétt á því að fara í fæðingarorlof? Bæði móðir og faðir nýfædds barns eiga rétt á því að taka fæðingarorlof. Auk þess eiga foreldrar rétt á slíkri orlofstöku við frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur, sé barnið yngra en átta ára. Einnig skapast réttur til orlofstöku við fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu og andvana fæðingu eftir 22 vikna meðgöngu. Skilyrði er að foreldrarnir hafi verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingu eða ættleiðingu, með 25% starfshlutfall eða hærra.
Hvaða rétt á fólk í orlofinu? Foreldrar eiga rétt á því að taka óslitið orlof í þrjá mánuði hvort, auk þess sem þeir geta skipt á milli sín þremur mánuðum til viðbótar. Reynslan hefur verið sú að móðirin tekur yfirleitt mesta hluta þessara þriggja mánaða. Með samkomulagi við vinnuveitanda má brjóta fríið niður í nokkur styttri tímabil en þó aldrei styttri en tvær vikur í senn. Laun foreldra í fæðingarorlofi eru greidd af Fæðingarorlofssjóði. Mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skal nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur.
Hámarks- og lágmarksupphæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og greiðsla fæðingarstyrkja á árinu 2009. Mánaðarlegar greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði til foreldris í fullu fæðingarorlofi eru 80% af meðallaunum tiltekinna tímabila vegna barna sem fæðast áárinu 2009, þó aldrei hærri en 400.000. Mánaðarleg greiðsla í fæðingarorlofi til foreldris í 25 – 49% starfi er aldrei lægri en 82.184. Mánaðarleg greiðsla í fæðingarorlofi til foreldris í 50 – 100% starfi er aldrei lægri en 113.902
Hvað með fólk sem ekki hefur verið á vinnumarkaði? Mánaðarlegur fæðingarstyrkur til foreldris utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfi er 49.702 en foreldri í fullu námi (75 – 100% nám) á rétt á 113.902 kr. fæðingarstyrk. Slíkur réttur nær aðeins til foreldra sem hafa barn í sinni forsjá og hafa átt lögheimili hér á landi í 12 mánuði á undan.
Sjálfstæður/sameiginlegur réttur foreldra Að ákveðnum skilyrðum uppfylltum á hvort foreldri um sig sjálfstæðan og óframseljanlegan rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði/fæðingarstyrks í allt að þrjá mánuði. Sjálfstæður réttur föður er þrír mánuðir frá 2003. Foreldrar eiga sameiginlega rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði/fæðingarstyrks í þrjá mánuði til viðbótar sem annað foreldrið getur tekið í heild eða þeir skipt á milli sín. Foreldrar geta fengið greiðslur á sama tíma eða mismunandi tímabilum. Sæki báðir tilvonandi foreldrar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði/fæðingarstyrk er umsókn þeirra sameiginleg og undirrituð af þeim báðum. Skilyrði greiðslna er að störf séu lögð niður á meðan greiðslur vara. Réttur til fæðingarorlofs/fæðingarstyrks fellur niður við 18 mánaða aldur barns.
Forsjá barns Réttur foreldris er almennt bundinn því að það fari með forsjá barns eða foreldrar hafi sameiginlega forsjá barns við upphaf greiðslna. Forsjárlaust foreldri getur þó átt rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði ef forsjárforeldri samþykkir umgengni þess við barnið meðan á fæðingarorlofinu stendur.
Hægt er að sækja umsókn og fá allar nánari upplýsingar um fæðingarorlof á www.faedingarorlof.is
Uppfært 14. júní 2009/ASV
|