Hoppaðu á ljósmæðra-vagninn
Nú hringsólar um göturnar grænn strætisvagn skreyttur allsnöktum fæðandi konum, dularfullum höndum og slagorðinu „við tökum vel á móti þér“. En hvers vegna?
Ár hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra
Á síðasta þingi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO, var helsta umræðuefnið hvernig hægt væri að bjarga lífum og stuðla að betri velferð kvenna og barna. Viðfangsefnið að þessu sinni var „gæða-ljósmæðraþjónusta“. Einnig ákvað WHO að tileinka hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum árið 2020 en þá eru einnig liðin 200 ár frá fæðingu Florence Nightingale, helsta frumkvöðul nútíma-hjúkrunarfræði . Með þessu vildi stofnunin vekja athygli á því hversu mikilvægu hlutverki hjúkrunarfræðingar og ljósmæður gegna í heilbrigðiskerfinu og samfélaginu í heild.
WHO hefur áður hvatt þjóðir heimsins til að hámarka framlag þessara tveggja starfsstétta í samfélaginu, fjárfesta af meiri krafti í hjúkrun og tryggja þannig öllu fólki rétt til heilbrigðisþjónustu án tillits til efnahags. Nú er því tilefni fyrir Ísland, sem og samfélög víða um heim, til að einbeita sér að því að veita vandaða hjúkrunar- og ljósmæðraþjónustu til allra kvenna, nýbura og fjölskyldna þeirra.
Hvers vegna er ljósmæðraþjónusta mikilvæg?
Ljósmæður eru ábyrgir fagaðilar sem sinna konum og fjölskyldum í gegnum allt barneignarferlið. Sérþekking þeirra snýr að eðlilegu ferli. Við búum svo vel hér á landi að ef konur eru heilbrigðar á meðgöngunni og eiga von á heilbrigðu barni, getur ljósmóðir verið eini fagaðilinn sem foreldrar hitta í gegnum allt ferlið. Ljósmæður líta á fæðingu barns í heiminn sem fjölskylduviðburð og eðlilegt ferli, þar til annað kemur í ljós. Þær hafa hins vegar þekkingu og reynslu til að koma auga á hið óeðlilega og blanda þá viðeigandi fagaðila í málið þegar þörf er á.
Ljósmæður sinna einnig fræðslu og veita þjónustu tengda heilbrigði, kvenheilsu og kvenlíkamanum. Þær starfa hvar sem er, meðal annars í heimahúsum, úti í samfélaginu, á sjúkrahúsum, á einkastofum eða á heilsugæslustöðvum.
Fleiri sjónarmið í mótun heilbrigðisstefnu
Skapa þarf öflugan vettvang fyrir ljósmæður og hjúkrunarfræðinga til að taka þátt stefnumótun í heilbrigðisþjónustu. Rannsóknir sýna að þar sem ljósmæður sinna barneignarþjónustu dregur úr líkum á dánartíðni og sjúkdómum hjá móður og barni um rúm 80% og fyrirburafæðingum um 24%. Að auki eru fleiri konur með börn sín á brjósti þar sem ljósmæður veita umönnun, sálfélagsleg líðan kvenna er betri og inngrip í fæðingu eru færri, sérstaklega keisaraskurðir. Starf ljósmæðra er því óumdeilanlega mikilvægt fyrir velferð nýbura og kvenna en ungbarnadauði hérlendis er með þeim lægsta í heiminum.
Af þessu tilefni vildi Ljósmæðrafélag Íslands nýta tækifærið, minna á sig og þannig ítreka mikilvægi ljósmæðraþjónustu hér á landi. Þrátt fyrir góðan árangur er alltaf hægt að gera betur.
Við tökum vel á móti þér!
Ljósmæðrafélag Íslands