Húð og slímhúð

Vegna hormónabreytinga við brjóstagjöf verða allar slímhúðir í líkamanum þurrari en þær eru venjulega.

Þurrar slímhúðir geta leitt til sársauka við samfarir en við því má nota sleipiefni. Þessar breytingar ganga svo til baka þegar jafnvægi kemst á hormónin eftir að brjóstagjöf er hætt. Konur sem hafa barn á brjósti svitna oft mikið sérstaklega fyrstu vikurnar eftir fæðingu. Konan finnur oft fyrir miklum þorsta, sérstaklega þegar hún er að gefa brjóst og er nauðsynlegt að hafa vatnsglas við höndina.