Feður/makar

Að verða foreldri felur í sér miklar líkamlegar og andlegar breytingar fyrir bæði barnshafandi einstaklinginn og makann. Makar geta fundið fyrir kvíða, áhyggjum og jafnvel líkamlegum einkennum eins og þyngdaraukningu og meltingartruflunum. Mikilvægt er að sýna stuðning á meðgöngunni með því að ræða saman um tilfinningar og að aðstoða við heimilisstörf. Nudd, slökun og þátttaka í foreldrafræðslunámskeiðum getur bætt upplifun beggja aðila á þessu ferli og styrkt sambandið.

Líkamlegar og andlegar breytingar

Að verða foreldri er stór breyting í lífi hvers einstaklings. Makar geta rétt eins og hinn barnshafandi einstaklingur, fundið fyrir miklum breytingum á meðgöngunni, bæði líkamlega og andlega. Þetta kemur mörgum í opna skjöldu. Flestir finna fyrir tilhlökkun og spennu en tilfinningar og hugsanir gagnvart þunguninni geta verið mismunandi. Makar geta fundið fyrir kvíða og geta hugsanir um praktísk atriði eins og fjármál, húsnæði, bíl, vinnu og fæðingarorlof valdið áhyggjum. Það kviknar gjarnan meiri ábyrgðartilfinning gagnvart heimilinu, konunni og stækkandi fjölskyldu og geta þessar tilfinningar verið yfirþyrmandi.

Líkamlegar breytingar eins og þyngdaraukning, meltingartruflanir, brjóstsviði, ógleði, minnkuð kynhvöt og ýmsir verkir eru meðal þess sem feður finna fyrir og er þetta algengara en talið hefur verið (Couvade syndrome). Ástæðurnar eru ekki að fullu þekktar en tengjast sennilega að mörgu leyti kvíða og áhyggjum.

Sumir makar finna fyrir einmannaleika og jafnvel afbrýðisemi þegar athygli konunnar beinist að miklu leyti að þeim breytingum sem eru að verða á líkama hennar. Konur hafa flestar þörf fyrir að finna að makinn sýni þessum breytingum athygli. Hinsvegar er þungunin og barnið oft óraunverulegt mökum þar til þeir heyra fyrst hjarstslátt, sjá barnið í ómskoðun eða finna spörkin og því getur verið erfitt fyrir þá að sýna meðgöngunni sama áhuga og konan á fyrstu vikunum.

Kynlíf breytist í flestum tilfellum eitthvað á meðgöngu. Fyrstu vikurnar eru margar konur mjög þreyttar, finna fyrir ógleði og hafa lítinn áhuga á að stunda kynlíf. Þetta getur aukið á einmannaleika makans. Líkamlegar breytingar sem verða á meðgöngunni geta ýmist virkað spennandi eða fráhrindandi fyrir makann. Maki getur einnig fundið fyrir minni áhuga á kynlífi á meðgöngunni. Tilhugsunin um að barnið sé þarna líka getur verið óþægileg og breytt útlit líkamans getur einnig truflað. Það er gott að ræða á nærgætinn hátt um þessar tilfinningar og finna saman lausnir sem henta báðum aðilum. Gott er að muna að konan getur verið ósátt við breytingarnar á líkama hennar og það að vita að makinn sé einnig ósáttur getur verið mjög særandi. Ef konan finnur fyrir minnkuðum áhuga eða getu til þess að stunda kynlíf er ekki þar með sagt að hún hafi ekki þörf á nánd og snertingu. Því er mikilvægt að halda áfram að taka utan um hana, kyssa, hrósa og tjá henni ást þína. HÉR má lesa meira um kynlíf á meðgöngu.

Hlutverk þitt sem maki

Makinn gegnir gríðarlega mikilvægum hlutverkum á meðgöngu, í fæðingu og í sængurlegu. Á meðgöngu er mikilvægt að sýna áhuga og vera góður stuðningsaðili. Það er gott að ræða við konuna um hennar líðan og hvað þú getur gert til þess að létta henni lífið. Einnig er mikilvægt að þið ræðið saman um þær breytingar sem eru að verða á lífi ykkar, tilfinningar ykkar og væntingar á heiðarlegan hátt. Það að ganga með barn veldur miklum líkamlegum breytingum og er algengt að finna fyrir mikilli þreytu og jafnvel pirringi. Þú sem maki getur þá jafnvel upplifað að nærveru þinnar sé ekki óskað eða að allt sem þú gerir sé ómögulegt en þá er einmitt mikilvægast að vera til staðar og hjálpa henni í gegnum þessi erfiðu tímabil. Fyrsti og síðasti þriðjungur meðgöngunnar er í flestum tilfellum meira krefjandi en annar þriðjungur. Á öðrum þriðjungi líður mörgum konum vel og líkjast sjálfum sér meira. Á þessum tíma getur þú farið að finna fyrir hreyfingum barnsins og barnið verður raunverulegra í þínum augum. Það er um að gera að njóta tímans, gera eitthvað skemmtilegt saman, fara í gönguferðir, stefnumót og annað. Einnig er þetta góður tími til að huga að ýmsum praktískum undirbúningi eins og til dæmis að útbúa barnaherbergi eða slíkt. Eftir því sem líður á meðgönguna verður erfiðara fyrir konuna að taka þátt í slíkum verkefnum.

Mikilvægt er að þú hjálpir til á heimilinu og sýnir stuðning. Dæmi um verk sem geta reynst konum erfið á meðgöngu eru:

  • Eldamennska, sérstaklega á fyrstu vikunum. Þegar konur þjást af ógleði eru meiri líkur á að þær hafi lyst á mat sem annar eldar. Einnig getur verið erfitt fyrir konur sem þjást af grindarverkjum að standa lengi við eldavélina
  • Þrif – Það er sérstaklega erfitt að skúra, sópa og ryksuga á meðgöngu
  • Bera þunga innkaupapoka eða annað þungt – þyngsli auka álag á mjaðmagrind
  • Að hætta að reykja. Það er mikilvægt að reyna að hætta reykingum þegar það á við. Sjá umfjöllun um reykingar HÉR

Það er mikið álag á líkamann að ganga með barn og getur gott nudd verið himnesk upplifun á þessum tíma. Þú gætir boðið upp á reglulegt nudd og getur það haft mjög jákvæð áhrif á sambandið, aukið nánd og upplifun konunnar um að þú hafir áhuga á meðgöngunni. Það er hægt að finna ýmsar leiðbeiningar um nudd fyrir barnshafandi til dæmis á youtube. Láttu renna í bað, eða útbúðu fótabað, kveiktu á kertum, hafðu nóg af púðum, rólega tónlist og góða nuddolíu og þá ættir þú að jafnast á við besta spa! Þetta er sérstaklega gagnlegt á þriðja þriðjungi en þá eru margar konur farnar að finna fyrir ýmsum verkjum, eiga erfitt með svefn og eru kannski farnar að finna fyrir áhyggjum af fæðingunni. Þá er gott að konan fái góða slökun og hvíld og geti róað hugann.

Ýmis námskeið eru í boði fyrir verðandi foreldra og er mjög gott að fara saman á slík námskeið. Það getur einnig hjálpað ykkur að sjá fyrir ykkur hvernig þið viljið hafa fæðinguna, hvar þið viljið vera og svo framvegis. Þið getið æft saman öndun, nudd og annað sem getur nýst í fæðingunni.

Áhugaverðar bækur:

  • Men, love & birth. Mark Harris, 2015
  • The Birth Partner: Everything You Need to Know to Help a Woman Through Childbirth. Penny Simkin, 2001
  • The Expectant Father: Facts, Tips, and Advice for Dads-to-Be. Armin A. Brott og Jennifer Ash, 2010.
  • Fathers To Be Handbook. A Road Map for the Transition to Fatherhood. Patrick M. Houser
  • Pabbi – bók fyrir verðandi feður, Ingólfur V. Gíslason Útgefandi: Opna
  • Fyrstu mánuðirnir: ráðin hennar Önnu ljósu. Höfundar: Anna Eðvaldsdóttir, Sylvía Rut Sigfúsdóttir Útgefandi: BF
  • Fæðingin ykkar - Handbók fyrir verðandi foreldra. Inga María Hlíðar Thorsteinson.