Þreyta
Margar konur finna fyrir þreytu á meðgöngu og þurfa að hvílast og sofa meira en venjulega.
Ráð við þreytu á meðgöngu
- Mikilvægt er að nýta þær auka stundir sem að þú færð til að hvílast.
- Þegar að þú finnur fyrir þreytu er gott að leggjast, hvílast eða sofna.
- Gott er að setjast niður og lyfta fótum upp á stól til hvíldar um stund.
- Gönguferð helst daglega er styrkjandi og eykur vellíðan og slökun.
- Reyndu að forðast allt auka álag.
Ef að þú ert mjög þreytt og nærð ekki hvíld skaltu ræða málið við ljósmóðurina þína í meðgönguverndinni.
Gangi ykkur vel.